Bára Þorgeirsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. mars 2022 kl. 11:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. mars 2022 kl. 11:59 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bára Þorgeirsdóttir frá Höfða fæddist þar 1. janúar 1927.
Foreldrar hennar voru Svanfríður Jónsdóttir frá Vík á Flateyjardal í S-Þing, síðar húsfreyja á Litlu-Grund, f. 20. júlí 1904, d. 27. ágúst 1951, og Daníel Þorgeir Lúðvíksson sjómaður frá Eskifirði, f. 27. júlí 1900, síðar útgerðarmaður, smiður á Vopnafirði og á Akureyri, síðast í Reykjavík, d. 13. mars 1967.

Bára var með móður sinni í fyrstu, en síðan með henni og Valdimar Tómassyni á Litlu-Grund.
Þau Svanfríður og Valdimar skildu 1934 og Bára fylgdi móður sinni til Reykjavíkur. Þær mæðgur bjuggu þar saman.
Bára giftist Bandaríkjamanni og fluttist til Bandaríkjanna.

I. Maður Báru, Bruce Skarstad, f. um 1927.
Barn þeirra:
1. Elfa, f. 9. mars 1945. Hún varð kjörbarn Andrésar Þorbjarnar Finnbogasonar, f. 19. desember 1911 og konu hans Guðnýjar Þorbjargar Sigurðardóttur, f. 13. ágúst 1908.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.