Arngrímur Pétursson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2005 kl. 14:39 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2005 kl. 14:39 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Arngrímur Pétursson var Prestur að Kirkjubæ frá árinu 1732 til ársins 1740. Foreldrar hans voru séra Pétur Gissurarson, prestur að Ofanleiti og kona hans, lögsagnara að Hólmum Landeyjum, Eyjólfssonar.

Hann varð stúdent úr Skálholtsskóla og var í eitt og hálft ár sveinn Þórðar Þorlákssonar, þáverandi biskups. Hann hafði gegnt allmörgum prestaköllum áður en hann fékk veitingu fyrir Kirkjubæ.

Séra Arngrímur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigrún Ólafsdóttir að Heylæk og síðari kona hans var Ragnheiður Markúsdóttir sýslumanns að Ási í Holtum. Hann dó árið 1742, þá rúmlega áttræður að aldri.

Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930