„Anna Pálsdóttir (ljósmóðir)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 10: Lína 10:
*Garður.is
*Garður.is
*Pers.
*Pers.
[Flokkur: Fólk]
[Flokkur: Ljósmæður]
[Flokkur: Ljósmæður]

Útgáfa síðunnar 13. október 2006 kl. 12:54

Anna fæddist 14. maí 1910 á Kvíabekk í Ólafsfirði, lézt 6. sept. 1984.
Foreldrar hennar voru Páll kennari þar og á Hofsósi og bóndi á Kvíabekk og Ártúni á Höfðaströnd í Skagafirði, oddviti og sýslunefndarmaður, f. 9. júlí 1879, d. 15. des. 1965, sonur Ísaks Árna bónda á Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal, síðar á Atlastöðum þar, f. 3. jan. 1851, d. 6. maí 1934, Runólfssonar og konu Ísaks Árna, Önnu Sigríðar húsfreyju, f. 7. des. 1859, d. 25. nóv. 1954, Björns bónda á Atlastöðum Sigurðssonar. Móðir Önnu ljósmóður og kona Páls Árnasonar var Þórey Halldóra ljósmóðir, f. 21. ágúst 1875 að Mýrarkoti á Höfðaströnd, d. 31. júlí 1957 á Hofsósi, Jóhanns bónda á Vatni í Hofshreppi í Skagafirði, Svínavallakoti í Unadal þar, Hóli á Skaga, - og um skeið sjómaður í Grafarósi, f. 1. nóv.1843, d. 12. des. 1923, Jónatanssonar bónda á Reykjarhóli í Fljótum Jónatanssonar og konu Jónatans á Reykjarhóli, Hólmfríðar Gunnlaugsdóttur. Móðir Þóreyjar Halldóru ljósmóður var Þórey húsfreyja, f. 14. jan. 1843, d. 6. maí 1884, Péturs bónda á Vatni Sveinssonar ríka Hjaltalín og konu Péturs á Vatni, Þóreyjar Ásmundsdóttur frá Bjarnastöðum í Unadal.
Anna lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 30. sept. 1940. Hún var ljósmóðir við Landspítalann 1. okt. 1940 til 10. okt. 1945 og frá 23. jan. 1973. Ljósmóðir í Eyjum var hún frá 10. okt. 1945 - goss 1973. (´80)
Anna var systir Unnar Pálsdóttur húsfreyju á Arnarstapa, konu Sveins Guðmundssonar forstjóra og bæjarfulltrúa.

Heimildir:

  • Ljósmæður á Íslandi.
  • Kennaratal.
  • Garður.is
  • Pers.

[Flokkur: Ljósmæður]