„Anna Einarsdóttir (Skála)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Anna Einarsdóttir (Skála)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 20: Lína 20:
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur: Íbúar í Skála-Litla Hlaðbæ]]
[[Flokkur: Íbúar í Skála- (Litla-Hlaðbæ)]]
[[Flokkur: Íbúar við Austurveg]]
[[Flokkur: Íbúar við Austurveg]]

Núverandi breyting frá og með 21. apríl 2020 kl. 14:42

Anna Einarsdóttir frá Skála u. Eyjafjöllum, húsfreyja fæddist 26. apríl 1872 í Skála u. Eyjafjöllum og lést 6. febrúar 1939.
Foreldrar hennar voru Einar Híerónýmusson, f. 7. september 1846 í Holtssókn, d. 6. apríl 1922, og fyrri kona hans Þorbjörg Sveinsdóttir, f. 25. júlí 1829, d. 17. mars 1894.

Anna var með foreldrum sínum í Ásólfsskála, en þau skildu og hún varð niðursetningur í Stóru-Mörk 1879.
Hún var vinnukona í Holti 1902, er þau Einar giftu sig. Þau eignuðust tvö börn, en Sigurður, yngra barnið, ólst upp hjá föðurforeldrum í Landeyjum. Þau fluttu til Eyja frá Skála u. Eyjafjöllum 1907, bjuggu í Skála (Litla-Hlaðbæ).
Einar lést 1930 og Anna 1939.

Maður Önnu, (26. október 1902), var Einar Jóhannsson frá Vorsabæ í A-Landeyjum, verkamaður, f. 24. júní 1875, d. 28. desember 1930.
Börn þeirra:
1. Guðrún Einarsdóttir húsfreyja í Skála, f. 10. október 1903, d. 30. maí 1961.
2. Sigurður Einarsson sjómaður, f. 29. nóvember 1904, d. 6. febrúar 1943.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.