„Þorgeir Jóelsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Þorgeir Jóelsson, [[Fögruvellir|Fögruvöllum]] og [[Sælundur|Sælundi]], var fæddur á [[Vesturhús]]um í Vestmannaeyjum 15. júní 1903 og lést 13. febrúar 1984. Foreldrar hans voru [[Jóel Eyjólfsson]] og [[Þórdís Guðmundsdóttir]].  
'''Þorgeir Jóelsson''', [[Fögruvellir|Fögruvöllum]] og [[Sælundur|Sælundi]], var fæddur á [[Vesturhús]]um í Vestmannaeyjum 15. júní 1903 og lést 13. febrúar 1984. Foreldrar hans voru [[Jóel Eyjólfsson]] og [[Þórdís Guðmundsdóttir]].  


Þorgeir hóf ungur sjómennsku en formennsku byrjaði Þorgeir árið 1925 með [[Lundi I|Lunda I]]. Eftir þá vertíð kaupir Þorgeir ásamt fleiri mönnum [[Lundi II|Lunda II]] og var formaður með hann yfir 30 vertíðir. Einnig var Þorgeir formaður á [[Harpa|Hörpu]], [[Hrafn]]i og [[Von II]].
Þorgeir hóf ungur sjómennsku en formennsku byrjaði Þorgeir árið 1925 með [[Lundi VE-141|Lunda I]]. Eftir þá vertíð kaupir Þorgeir ásamt fleiri mönnum [[Lundi VE-141|Lunda II]] og var formaður með hann yfir 30 vertíðir. Einnig var Þorgeir formaður á [[Harpa|Hörpu]], [[Hrafn]]i og [[Von II]].


[[Loftur Guðmundsson]] samdi eitt sinn formannsvísu um Þorgeir:
[[Loftur Guðmundsson]] samdi eitt sinn formannsvísu um Þorgeir:

Útgáfa síðunnar 11. ágúst 2006 kl. 13:35

Þorgeir Jóelsson, Fögruvöllum og Sælundi, var fæddur á Vesturhúsum í Vestmannaeyjum 15. júní 1903 og lést 13. febrúar 1984. Foreldrar hans voru Jóel Eyjólfsson og Þórdís Guðmundsdóttir.

Þorgeir hóf ungur sjómennsku en formennsku byrjaði Þorgeir árið 1925 með Lunda I. Eftir þá vertíð kaupir Þorgeir ásamt fleiri mönnum Lunda II og var formaður með hann yfir 30 vertíðir. Einnig var Þorgeir formaður á Hörpu, Hrafni og Von II.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þorgeir:

Fyrir þrótt sinn þor og fjör
Þorgeir orðstírs nýtur,
er Lundinn hlaðinn heim að vör
hvíta kólgu brýtur.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Þorgeir:

Þéttur herjar þorska slóð
Þorgeir Sæs- á lundi,
happa stór þá leggur lóð
lagnar út á sundi.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.