Þú veist hvað ég meina

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 09:43 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 09:43 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Hljótt í vestri kveður kvöld
kvikna eldar nætur.
Táp og kæti taka völd,
titra hjartarætur.
Dalsins lífi greiðum gjöld
gleðin sanna lokkar.
Þráin vaknar þúsundföld
þessi nótt er okkar
Þú veist hvað ég meina mær,
munarblossar ginna.
Komdu þar sem freisting fær
fylling vona sinna.
Meðan nóttin framhjá fer
fljóðið ástarblíða.
Inni í tjaldi trúðu mér
tækifærin bíða.
Vinnum ástarheitið hér
hjörtun látum mætast.
Enginn veit og enginn sér
okkar drauma rætast.
Lag: Sigurjón Ingólfsson.
Texti: Guðjón Weihe