„Út í Elliðaey“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 34: Lína 34:
:''Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.
:''Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.
                      
                      
::Lag og texti: [[Valur Óskarsson]]


::Lag og texti: [[Valur Óskarsson]]
[[Flokkur:Þjóðhátíðarlög]]

Útgáfa síðunnar 26. júlí 2005 kl. 13:13

Þjóðhátíðarlag
1979 1980 1981
Út í Elliðaey situr lítill lundi
leggur kollhúfur og horfir á,
þegar bátar sigla hægt á hafið
höfninni í Vestmannaeyjum frá.
En niðri á bryggju nokkrir strákar standa
þeir stara hugfangnir á karlana,
sem landa fiski, bölva hátt og hrópa,
en horfa stundum blítt á peyjana.
Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.
Þeir minnast þeirra daga, er drengir sjálfir voru
og dreymir oft á nóttunni um það,
þegar lundapysjur lentu í bænum
og leiðangur af krökkum hélt af stað,
því bjarga þurfti í hvelli öllum ungum
og allir kepptust við að finna mest.
Já, æskuárin mættu endast lengur,
því æskan er í lífi voru best.
Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.
Út í Elliðaey situr lítill lundi,
lúinn eftir heitan sumardag.
Allt í kring eru sællegir svartfuglar
að syngja eigið þjóðhátíðarlag.
það syngur þarna hver með sínu nefi
og sumir stíga villtan diskódans.
því allir eyjafuglar vilja tolla í tísku
og tæpast færu að dansa Óla skans.
Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.
Lag og texti: Valur Óskarsson