„Úraníus Guðmundsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Úraníus Guðmundsson“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 25. apríl 2014 kl. 12:41

Úraníus Guðmundsson vélstjóri, f. 28. desember 1914, d. 17. júní 1968.
For.: Pálína Samúelsdóttir úr Strandasýslu, f. 10. júní 1871, d. 3. des 1959 á Elliheimili VestmannaeyjaSkálholti, og Guðmundur Semingsson frá Skinnastöðum í Þingeyrarsókn í Húnavatnssýslu, f. 15. október 1854, d. 23. ágúst 1922.
Úraníus bar skírnarnafnið Úranus, en breytti því. Hann var vélstjóri um árabil á Baldri VE-24 með Haraldi Hannessyni. Í blaðnefnd Sjómannadagsblaðs Vestmannaeyja var hann 1954 og 1955.
Maki: Jórunn Lilja Magnúsdóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 5. desember 1919, d. 14. febrúar 2008, Boðaslóð 6, síðast að Hraunbúðum.
Börn:
Viktor Þór, trésmiður, í Eyjum og á Reykjalundi.
Pálína, starfskona á Sjúkrahúsinu.
Gylfi Þór, látinn.
Skúli, bifreiðastjóri.
Oddgeir Magnús, sjómaður.
Jón Trausti, vinnuvélastjóri, dó af slysförum í hlíðum Eldfells.



Heimildir