Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Vísur eftir Ólaf Magnússon í Nýborg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. september 2013 kl. 12:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. september 2013 kl. 12:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Vísur eftir Ólaf Magnússon í Nýborg“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit




Úr fórum Árna Árnasonar


Vísur eftir Ólaf Magnússon í Nýborg


Hjá bátnum fljóta boðaföll
brims í róti er fleirra.
Höppin fljóta áfram öll
en ýmsir njóta þeirra.
Margoft hreppa menn á sjó
mjög óheppið veður.
Ég vil kreppast inni í kró
upp, þá „sleppan“ veður.
(Sleppan, þ.e. grásleppan)
Sumir dúða sig af því
í sæld og skrúði baða,
en ég er lúða lörfum í
og læt með súðum vaða.
Gekk ég móa grænum á,
gleðin bjó þar staka.
Ungan spóa eg þar sá
yfir lóu vaka.
Senn eru komin signuð jól,
sólin fer að hækka.
Skín glatt ljós um skatna ból,
skuggunum tekur að fækka.
Pían kokka puntaða
pilt vill lokka án trega.
Honum smokka hárauða
hún gaf þokkalega.
Strengir hvína á stormi hátt,
strákar engu kvíða.
Nú mun koma byrinn brátt,
þá bátinn látum skríða.
Til glötunar er gatan breið,
þó garpar hana labbi.
En mætast þar á miðri leið
marflóin og krabbi.
(Öfugmælavísa)
„Skellir“ ei er skógalaus,
skatnar trúi ég úr honum steli.
Eggvarp nóg er í honum „Hnaus“,
ætla ég í „Lat“ þeir hafi í seli.
Hingað ég gekk í húmi nætur
húsinu þessu stóra frá.
Þá virtist mér eins og söngur sætur
sunginn vera þar austur frá.
Undir mig fótum betri brá
blessaðar snótir til að sjá.
Í kvöld vil ég mína kærustu hitta,
í kvöld skal ég reyna að skemmta mér vel,
í kvöld skal ég dansa og stundirnar stytta,
staupinu klingja við brennivínspel.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit