Ólafur Jónsson (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. febrúar 2014 kl. 12:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. febrúar 2014 kl. 12:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ólafur Jónsson (Dölum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Jónsson bóndi í Dölum fæddist 1800 í Háfssókn í Holtum og lést 21. september 1863.

Ólafur var orðinn bóndi í Dölum 1825. Hann bjó þar síðan.

Ólafur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona Ólafs, (23. október 1825), var Fídes Pétursdóttir húsfreyja, f. 1790, d. 17. júlí 1842.
Börn þeirra hér:
1. Guðmundur Ólafsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1. janúar 1826, d. 22. maí 1866.
2. Jakob Ólafsson, f. 6. mars 1827, d. 11. mars 1827 úr „Barnaveiki“.
3. Geirlaug Ólafsdóttir, f. 30. janúar 1828, d. 5. febrúar 1828 úr ginklofa.
4. Jón Ólafsson, f. 28. mars 1830, d. 5. apríl 1830 úr ginklofa.
5. Sveinn Ólafsson, f. 23. apríl 1832, d. 25. apríl 1832 úr ginklofa.

II. Barnsmóðir Ólafs var Valgerður Magnúsdóttir vinnukona úr A-Landeyjum, f. 16. október 1806, d. 6. desember 1896.
Barn þeirra var:
6. Ólafur Ólafsson, f. í Krosssókn í Landeyjum 1842, hrapaði úr Elliðaey 14. júlí 1867.

III. Síðari kona Ólafs, (8. nóvember 1850), var Guðríður Þorsteinsdóttir frá Sperðli í V-Landeyjum, f. 1797.
Þau voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.