Ástríður Þorbjörnsdóttir (Dalahjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. október 2013 kl. 14:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. október 2013 kl. 14:14 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ástríður Þorbjörnsdóttir frá Dalahjalli, húsfreyja í Jórvík í Álftaveri og víða undir Eyjafjöllum, fæddist 22. september 1799 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum og lést 29. apríl 1883 í Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum.
Faðir hennar var Þorbjörn Jónsson tómthúsmaður í Dalahjalli, f. 1765, d. 20. bebrúar 1811.
Móðir hennar var Kristín Þórólfsdóttir húsfreyja í Dalahjalli, f. 1765, d. 11. október 1830.

Ástríður var niðursetningur í Fagurhól í A-Landeyjum 1816. Hún fór til Eyja, en 1830 fór hún að Hörgslandi á Síðu og var þar vinnukona til 1831, en þá fór hún að Mýrum í Álftaveri. Hún var húskona í Jórvík þar 1833-1835, húsfreyja þar 1835-1841. Þá fór hún að Hólakoti u. Eyjafjöllum. Hún bjó á Minni-Borg þar 1845, í Berjanesi þar 1850 og áfram til 1871. Þá bjó hún á Krókvelli þar 1871-1879, húskona í Bakkakoti þar 1880, niðursetningur í Ytri-Skógum við andlát.

Ástríður var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Ólafur Jónsson, f. 26. júní 1799 á Leiðvelli í Meðallandi.
1. Barn þeirra var Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja í Dölum, f. 1838 í Jórvík, d. 23. janúar 1920 á Syðri-Fljótum í Meðallandi.
II. Síðari maður Ástríðar var Ólafur Ólafsson, f. 24. september 1814 í Lágu-Kotey í Meðallandi, d. 20. september 1896 í Ytri-Skógum.
Börn þeirra voru:
2. Jón Ólafsson húsmaður á Vilborgarstöðum, f. 1840 í Jórvík.
3. Kristný Ólafsdóttir húsfreyja á Leirum og Miðskála u. Eyjafjöllum, f. 12. apríl 1842, d. 2. mars 1914.
III. Barn Ástríðar með Guðbrandi Magnússyni bónda á Svanavatni í A-Landeyjum, f. 12. júní 1797, d. 6. mars 1868.
Barnið var:
4. Einar Guðbrandsson, f. 27. júní 1824, d. 4. júlí 1826.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.