Ásmundur Ásmundsson (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. febrúar 2015 kl. 19:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. febrúar 2015 kl. 19:36 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ásmundur Ásmundsson vinnumaður fæddist 1801 í Stokkseyrarseli í Flóa og hrapaði til bana 20. júní 1846.
Móðir hans var Guðrún Jónsdóttir vinnukona í Eystra-Stokkseyrarseli 1801.

Ásmundur var tökupiltur á Butraldastöðum í Teigssókn 1816, skráður bóndi í Ólafshúsum í lok árs 1824, húsmaður í Þorlaugargerði 1825, húsbóndi í Ólafshúsum 1826, þar 1828, húmaður á Ofanleiti 1832, 1833, vinnumaður þar 1834 og 1835, tómthúsmaður í Kastala 1840, vinnumaður í Götu 1845.
Hann hrapaði til bana „í sjó“ 1846.

Kona Ásmundar, (5. október 1824), var Margrét Guðmundsdóttir frá Ólafshúsum, f. 8. ágúst 1792, d. 29. júní 1862.
Barn þeirra hér:
3. Valgerður Ásmundsdóttir, f. 17. október 1825, d. 28. október 1825 úr ginklofa.


Heimildir