Ásmundur Ásmundsson (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2014 kl. 20:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2014 kl. 20:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ásmundur Ásmundsson''' vinnumaður fæddist 1801 í Stokkseyrarseli í Flóa og hrapaði til bana 20. júní 1846.<br> Móðir hans var Guðrún Jónsdóttir vinnukona í Eystra-...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ásmundur Ásmundsson vinnumaður fæddist 1801 í Stokkseyrarseli í Flóa og hrapaði til bana 20. júní 1846.
Móðir hans var Guðrún Jónsdóttir vinnukona í Eystra-Stokkseyrarseli 1801.

Ásmundur var tökupiltur á Butraldastöðum í Teigssókn 1816, vinnumaður á Ofanleiti 1835, tómthúsmaður í Kastala 1840, vinnumaður í Götu 1845. Hann hrapaði til bana „ í sjó“ 1846.

Kona Ásmundar, (5. október 1824), var Margrét Guðmundsdóttir frá Ólafshúsum, f. 8. ágúst 1792, d. 29. júní 1862.
Barn þeirra hér:
3. Valgerður Ásmundsdóttir, f. 17. október 1825, d. 28. október 1825 úr ginklofa.


Heimildir