„Árni Jónsson (Kirkjubæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Árni Jónsson''' bóndi á Kirkjubæ fæddist 27. september 1803 og lést 27. febrúar 1842.<br> Faðir hans var Jón bóndi í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum, f. 1776, d. 22. mars 18...)
 
m (Verndaði „Árni Jónsson (Kirkjubæ)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 20:24

Árni Jónsson bóndi á Kirkjubæ fæddist 27. september 1803 og lést 27. febrúar 1842.
Faðir hans var Jón bóndi í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum, f. 1776, d. 22. mars 1820, Árnason bónda og formanns í Litlu-Hildisey, f. 1727, d. 16. mars 1802, Guðmundssonar.
Móðir Árna á Kirkjubæ var Ingveldur húsfreyja í Litlu-Hildisey, f. 1738, d. 30. apríl 1806, Árnadóttir bónda í Hólmum í A-Landeyjum og fyrri konu hans (ókunn).
Foreldrar Árna á Hólmum voru Jón Jónsson bóndi á Hólmum og Nannvör Tómasdóttir af Romshvalsnesi (mt. 1703).
Kona Árna á Kirkjubæ var Ingibjörg húsfreyja á Kirkjubæ, f. 1790 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, Erasmusdóttir. Árni var seinni maður hennar.
Barn Ingibjargar og Árna var Arnbjörg („Ampa“) húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 24. júlí 1836.


Heimildir

  • Landeyingabók – Austur Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.