Árni Þórarinsson (Eystri Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. september 2006 kl. 13:32 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. september 2006 kl. 13:32 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Þórarinsson, Oddsstöðum, fæddist að Fossi í Mýrdal 25. maí 1896 og lést 18. janúar 1982 í Kópavogi. Foreldrar hans voru Þórarinn Árnason og Elín Pálsdóttir. Árið 1908 flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja.

Árið 1915 byrjar Árni sjómennsku á Gideon hjá Eyvindi Þórarinssyni bróður sínum. Árni tók við formennsku á Goðafossi árið 1917 og var hann með hann til vertíðarloka ársins 1925.

Árni var aflakóngur Vestmannaeyja 1918, 1920 og 1926.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.