Ágústnótt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 16:05 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 16:05 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Undurfagra ævintýr,
ágústnóttin hljóð,
um þig syngur æskan hýr
öll sín bestu ljóð.
Ljósin kvikna brennur bál,
bjarma slær á grund.
Ennþá fagnar sérhver sál
sælum endurfund.
Glitrandi víf og vín
veita mér stundar frið.
Hlæjandi ljúfa líf,
ljáðu mér ennþá bið.
Undurfagra ævintýr,
ágústnóttin hljóð,
hjá þér ljómar ljúf og hýr
lífsins töfraglóð.
Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Árni úr Eyjum