„Ágústnótt“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(1 millibreyting ekki sýnd frá 1 notanda)
Lína 21: Lína 21:
::Lag: [[Oddgeir Kristjánsson]]
::Lag: [[Oddgeir Kristjánsson]]
::Texti: [[Árni úr Eyjum]]
::Texti: [[Árni úr Eyjum]]
:: [http://www.tonlist.is/PlayTrack.aspx?TrackID=25954&Preview=1 Hlusta á lag af tonlist.is]
:: [http://www.tonlist.is/PlayTrack.aspx?TrackID=25954&Preview=1 Hlusta á tóndæmi af tonlist.is]
 
[[Flokkur:Tónlist]]

Núverandi breyting frá og með 14. júní 2006 kl. 08:17

Undurfagra ævintýr,
ágústnóttin hljóð,
um þig syngur æskan hýr
öll sín bestu ljóð.
Ljósin kvikna brennur bál,
bjarma slær á grund.
Ennþá fagnar sérhver sál
sælum endurfund.
Glitrandi víf og vín
veita mér stundar frið.
Hlæjandi ljúfa líf,
ljáðu mér ennþá bið.
Undurfagra ævintýr,
ágústnóttin hljóð,
hjá þér ljómar ljúf og hýr
lífsins töfraglóð.
Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Árni úr Eyjum
Hlusta á tóndæmi af tonlist.is