Steinunn Ísaksdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2015 kl. 15:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2015 kl. 15:07 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Ísaksdóttir húsfreyja frá Norðurgarði fæddist 22. október 1856 og lést 31. janúar 1920.
Foreldrar hennar voru Ísak Jakob Jónsson bóndi í Norðurgarði, f. 1833, d. 9. apríl 1899, og kona hans Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja, f. 1833, d. 30. ágúst 1906.

Steinunn var með fjölskyldu sinni í Norðurgarði 1860. Hún var með verkakonunni móður sinni og Hjálmfríði Björgu systur sinni í Grímshjalli 1870, skráð á sveit.
Við skráningu 1880 var hún vinnukona á Vesturhúsum og þar var hún einnig við fæðingu Guðjóns 1881.
1890 var hún ógift vinnukona í Ísakshúsi hjá föður sínum og þar var Guðjón sonur hennar 9 ára.
Hún var „sjálfrar sín“ með Jóhann Tómas son sinn á Vilborgarstöðum 1895.
Steinunn var leigjandi hjá Hjálmari hálfbróður sínum í Kufungi 1901.
Hún fluttist úr Eyjum til Reykjavíkur 1904 ásamt Guðmundi Steinssyni manni sínum 28 ára og syninum Ólafi Tómassyni 11 ára. Við manntal 1910 var hún húsfreyja á Laugavegi 60 í Reykjavík með barnið Jóhann Ólaf Tómasson.

I. Barnsfaðir Steinunnar var Eggert Guðmundur Ólafsson frá Götu, f. 1. nóvember 1855, d. 2. desember 1918 í Utah.
Barn þeirra var
1. Guðjón Eggertsson sjómaður í Eyjum, f. 17. janúar 1881, d. 27. september 1936.

II. Barnsfaðir hennar var Sigurður Þorleifsson, þá í Ísakshjalli, síðar í Vesturheimi, f. 20. september 1859, d. 8. mars 1822 í Utah.
Barn þeirra var:
2. Kristmundur Sigurðsson, f. 31. janúar 1885, d. 17. febrúar 1885.

III. Barnsfaðir hennar var Tómas Ólafsson, þá vinnumaður á Gjábakka, f. 1. mars 1869.
Barn þeirra var
2. Jóhann Ólafur Tómasson, f. 13. febrúar 1893 á Gjábakka, fórst með e/s Áslaugu frá Haugasundi 24. desember 1929.

IV. Maður hennar, (21. desember 1902), var Guðmundur Steinsson, f. 25. ágúst 1878 í Hvalsnessókn, d. 1907. Hann var hjú í Frydendal 1901
.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.