Einar Jónsson (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2015 kl. 21:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2015 kl. 21:13 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Einar Jónsson


Einar

Einar Jónsson, Háagarði, fæddist í Álftaveri 16. desember 1902. Einar fór með foreldrum sínum Jóni Sverrissyni og Sólveigu Jónínu Magnúsdóttur til Vestmannaeyja árið 1919. Það sama ár keypti Jón, faðir Einars, Mínervu og var hann háseti þar til 1925 þegar hann tók við formennsku á henni. Einar var með hana til 24. janúar 1927 þegar hann fórst á henni ásamt áhöfn í suðaustan ofsaveðri vestur af Smáeyjum. Með bátnum fórst einnig Sverrir Magnús bróðir Einars.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Páll Oddgeirsson: Minningarrit. Vestmannaeyjum 1952.