Carl Henning Bohn verslunarstjóri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. apríl 2015 kl. 19:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. apríl 2015 kl. 19:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Carl Henning Bohn''' verslunarstjóri í Garðinum fæddist 1826 og lést 29. janúar 1863. Hann fluttist til Eyja frá Kaupmannahöfn 1857 og var verslunarstjóri t...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Carl Henning Bohn verslunarstjóri í Garðinum fæddist 1826 og lést 29. janúar 1863. Hann fluttist til Eyja frá Kaupmannahöfn 1857 og var verslunarstjóri til dd. 1863. Hans er getið sem meðlims í Lestrarfélaginu 1862.
Bohn fór til Kaupmannahafnar 1861, kom aftur 1862.
Hann lést 1863, „dó eftir langvarandi sjúkdóm er síðast var samfara vatnssýki“ og var jarðsettur 6. febrúar, „grafinn upp aftur 24. ágúst eftir beiðni hlutaðeigandi vandamanna, og líkið flutt til Kaupmannahafnar“.
Verslunarstjórinn var ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.