Valgerður Kristjánsdóttir (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. apríl 2015 kl. 11:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. apríl 2015 kl. 11:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Valgerður Kristjánsdóttir''' vinnukona á Miðhúsum fæddist 9. júlí 1800 í Tungu í Fljótshlíð og lést 30. júlí 1843.<br> Foreldrar hennar voru Kristján Hansson ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Kristjánsdóttir vinnukona á Miðhúsum fæddist 9. júlí 1800 í Tungu í Fljótshlíð og lést 30. júlí 1843.
Foreldrar hennar voru Kristján Hansson bóndi í Tungu, f. 1768, d. 25. ágúst 1825, og kona hans Sæunn Snorradóttir húsfreyja, f. 1767, d. 9. september 1830.

Valgerður var með foreldrum sínum í bernsku, var vinnukona í Króki í Útskálasókn á Reykjanesi 1816, í Litlu-Tungu í Holtum 1835, á Torfastöðum í Fljótshlíð 1840.
Hún fluttist að Miðhúsum 1842 og var þar vinnukona við andlát 1843.
Valgerður var ógift og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.