Jakob Björnsson (Nöjsomhed)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. mars 2015 kl. 21:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. mars 2015 kl. 21:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jakob Björnsson''' vinnumaður fæddist 22. nóvember 1861 á Rauðafelli ytra u. Eyjafjöllum.<br> Foreldrar hans voru Björn Björnsson vinnumaður, f. 4. ágúst 1830, d. 11. o...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jakob Björnsson vinnumaður fæddist 22. nóvember 1861 á Rauðafelli ytra u. Eyjafjöllum.
Foreldrar hans voru Björn Björnsson vinnumaður, f. 4. ágúst 1830, d. 11. október 1912, og kona hans Guðrún Jónsdóttir vinnukona, f. 18. nóvember 1836, d. 5. janúar 1920.

Jakob var 8 ára niðursetningur á Leirum u. Eyjafjöllum 1870, vinnumaður á Stóru-Borg þar 1880.
Hann fluttist að Jónshúsi undan Fjöllunum 1887, 27 ára, var vinnumaður þar 1887-1890, í Norðurgarði 1891, og þar var Guðrún Jónsdóttir vinnukona.
Þau voru í Nöjsomhed við fæðingu Jóhönnu 1892 og fluttust þaðan til Utah 1892.

Kona Jakobs var Guðrún Jónsdóttir vinnukona, síðar húsfreyja í Utah, f. 3. janúar 1859, d. 14. febrúar 1942.
Börn þeirra hér:
1. Jóhanna Jakobsdóttir, f. 12. júní 1892 í Nöjsomhed. Hún fór til Utah.
2. Jakob Jonathan Bearnson, f. 1894, d. 1915.
3. Elenora Groa Christine Bearnson, f. 1898, d. 1963.
4. Robena Bearnson, f. 1902, d. 1902.
5. Robert Ingersol Bearnson, f. 1903, d. 1951.


Heimildir