Reynir
Húsið Reynir stóð við Bárustíg 5.
Reynir hýsti í gegnum tíðina bókaverslun, kosningaskrifstofu, Sparisjóð Vestmannaeyja 1943-1945, umboðskrifstofu Happdrættis DAS og radíóverkstæði.
Húsið var rifið á árunum 1978-1980.
Eigendur og íbúar
- Kristinn Ólafsson
- Jóhann Gunnar Ólafsson fyrrv. bæjarstjóri
- Magnús Hjörleifsson
- Kristjana Jóhannsdóttir
- Þormóður Stefánsson og fjölskylda 1953
- Ingrid Sigfússon 1953
- Svavar Antoníusson
Heimildir
- Bárustígur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.