Jóhannes Illugason (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. febrúar 2015 kl. 18:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. febrúar 2015 kl. 18:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhannes Illugason''' sjómaður í Kornhól fæddist 1777 í Eyjafirði og lést 29. júní 1860 í Kornhól.<br> Foreldrar hans voru Illugi Jónsson bóndi í He...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhannes Illugason sjómaður í Kornhól fæddist 1777 í Eyjafirði og lést 29. júní 1860 í Kornhól.
Foreldrar hans voru Illugi Jónsson bóndi í Helgárseli í Garðsárdal í Eyjafirði, f. 1747, d. 16. maí 1799, og kona hans Halldóra Þorgeirsdóttir húsfreyja, f. 1741, d. 13. janúar 1831.

Jóhannes var vinnumaður í Munkaþverárklaustri í Eyjafirði 1816, ókvæntur 55 ára vinnumaður á Teigi í Fljótshlíð 1835, í Kornhól 1840, 63 ára, skráður ekkill þar 1845, 73 ára ókvæntur í Kornhól 1850, 79 ára þar 1855.
Hann lést 1869, niðursetningur í Kornhól.

I. Barnsmóðir hans var Katrín Halldórsdóttir vinnukona í Kornhól og víðar, síðar bústýra og húsfreyja í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, f. 13. mars 1816, drukknaði í Álum í Landeyjum 14. apríl 1869.
Barn þeirra var
1. Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir húsfreyja í Árnatóft í Stokkseyrarhreppi, f. 5. október 1841 í Krosssókn í A-Landeyjum, d. 10. ágúst 1891.


Heimildir