Hallur Hróbjartsson (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. janúar 2015 kl. 21:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. janúar 2015 kl. 21:52 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hallur Hróbjartsson bóndi á Búastöðúm fæddist um 1727 og lést 3. mars 1808.
Hann var bóndi á Búastöðum 1801 og bjó þar ásamt konu sinni Önnu Árnadóttur og dóttur þeirra Ragnhildi Hallsdóttur.
Hallur hlaut heiðurspening fyrir umbætur í jarðrækt, líklega tilraunir til kornræktar á síðari hluta 18. aldar.
Hans er getið í formannavísum Magnúsar Magnússonar vertíðina 1765.

Tólfæring út á elfu
allvel Hróbjartsson Hallur
keyrir á kembings mýri
kári þá veltir báru
forðast ei fisk að myrða
flyðrum sízt vægðar biður
trönu flóðs tólf með fjöðrum
Týr bauga fullvel stýrir.

Heimildir