Saltaberg (hús)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. apríl 2006 kl. 21:39 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. apríl 2006 kl. 21:39 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Setti inn tengla)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Saltaberg stendur við Illugagötu 61. Það var áður skráð við Höfðaveg 19. Jón Hlöðver Johnsen (Súlli) frá Suðurgarði, byggði húsið árið 1950, eftir teikningu frá Rögnvaldi Johnsen arkitekt og þótti útlit þess mjög sérstakt á þeim tíma og þykir raunar enn. Súlli bjó lengst af á Saltabergi, ásamt konu sinni Sigríði Haraldsdóttur (Bíu) frá Garðshorni en nú býr þar sonur þeirra, Haraldur Geir Hlöðversson, ásamt konu sinni, Hjördísi Kristinsdóttur.