Oddgeir Þórarinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2014 kl. 09:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2014 kl. 09:30 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Oddgeir

Oddgeir Páll Þórarinsson fæddist að Fossi í Mýrdal 17. september 1893 og lést 11. ágúst 1972. Foreldrar hans voru Þórarinn Árnason og Elín Jónsdóttir. Árið 1908 fluttist hann til Vestmannaeyja með foreldrum sínum og systkinum. Oddgeir var kvæntur Jórunni Gísladóttur frá Vestmannaeyjum.

Oddgeir hóf sjómennsku árið 1917 og var sjómaður í 17 ár, þar af formaður í 6 ár. Eftir það gerist Oddgeir vélgæslumaður í Rafstöð Vestmannaeyja þar sem hann starfaði þar til hann fluttist frá Eyjum árið 1945. Oddgeir var fyrsti lögskráði bifreiðarstjórinn í Vestmannaeyjum og hafði ökuskírteini númer 1 í Vestmannaeyjum.

Myndir