Oddný Magnúsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. september 2014 kl. 20:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. september 2014 kl. 20:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Oddný Magnúsdóttir''' húsfreyja og ljósmóðir á Seyðisfirði og í Kanada fæddist 21. ágúst 1854 á Vilborgarstöðum og lést 25. apríl 1932 í Ka...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Oddný Magnúsdóttir húsfreyja og ljósmóðir á Seyðisfirði og í Kanada fæddist 21. ágúst 1854 á Vilborgarstöðum og lést 25. apríl 1932 í Kanada.
Foreldrar hennar voru Magnús Pálsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 13. júlí 1816, d. 13. nóvember 1869, og kona hans Oddný Þórðardóttir húsfreyja, f. 21. október 1815, d. 1888 Vestanhafs.

Systkini Oddnýjar í Eyjum voru:
1. Sigurður Magnússon, f. 22. mars 1851, d. 2. júní 1879.
2. Jóhanna Magnúsdóttir húsfreyja, f. 13. febrúar 1850 og mun hafa látist Vestanhafs.

Oddný var með foreldrum sínum í æsku, var vinnukona í Frydendal 1874.
Hún sigldi til Kaupmannahafnar 1875, lauk þar ljósmæðraprófi 1880.
Oddný stundaði ljósmóðurstörf á Seyðisfirði frá 1880, var umdæmisljósmóðir þar frá 1883-1888.
Þau Eiríkur fluttust með fjölskyldu og Oddnýju móður Oddnýjar til Winnipeg 1888.
Oddný stundaði ljósmóðurstörf í Þingvallanýlendu Sascatchewan í Kanada.

Maður Oddnýjar, (1880 í K.höfn), var Eiríkur Bjarnason vinnumaður og sjómaður, f. 2. nóvember 1848, d. 14. febrúar 1929.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Eiríksdóttir húsfreyja, f. 1881, gift Robert Moore .
2. Sigurður Eiríksson bóndi, f. 1882.
3. Anna Vilhelmína, f. 4. febrúar 1886, gift Sigurði Jóelssyni trésmið í Þingvallanýlendu í Saskatchewan.
4. Magnús Eiríksson bóndi, f. Vestanhafs.
5. Helga Eiríksdóttir húsfreyja, f. Vestanhafs, gift Hermanni Sigurðssyni smið og vélstjóra, síðar í Vancouver.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Ljósmæður á Íslandi 1-2. Ritstjóri Björg Einarsdóttir. Ljósmæðrafélag Íslands 1984.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.