Magnús Pálsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. ágúst 2014 kl. 12:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. ágúst 2014 kl. 12:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Magnús Pálsson''' bóndi, útvegsbóndi og forsöngvari á Vilborgarstöðum fæddist 13. júlí 1816 á Uxahrygg á Rangárvöllum og lést 13. nóvember 18...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Pálsson bóndi, útvegsbóndi og forsöngvari á Vilborgarstöðum fæddist 13. júlí 1816 á Uxahrygg á Rangárvöllum og lést 13. nóvember 1869 á ferð í Landeyjum.
Foreldrar hans voru Páll Pálsson frá Uxahrygg, bóndi víða, síðast á Fróðholtshóli á Rangárvöllum, f. 1790, skírður 7. október það ár, d. 30. október 1839 í Fróðholtshól, og kona hans Steinunn Guðmundsdóttir húsfreyja frá Galtarholti á Rangárvöllum, f. 27. júlí 1791 á Sperðli í Landeyjum, d. 20. mars 1864 í Fróðholtshól.

Magnús var með foreldrum sínum 1816, var vinnumaður á Uxahrygg 1835.
Þau Oddný voru gift vinnuhjú á Kálfsstöðum í Landeyjum 1840. Hann var kvæntur vinnumaður hjá sr. Ásmundi Jónssyni í Odda 1845.
Þá voru þau grashúsfólk í Galtarholti 1850 með soninn Þórð 9 ára hjá sér.
1851 fluttust þau að Vilborgarstöðum úr Oddasókn með barnið Jóhönnu tveggja ára, en Þórður kom ekki með þeim.
Þau voru bændur á Vilborgarstöðum 1852. 1853 hafði Sigurður fæðst. Oddný fæddist svo 1853. Þá voru þau sjávarbændur á Vilborgarstöðum 1855 með Jóhönnu, Sigurð og Oddnýju hjá sér.
1863 var Jóhanna farin, en komin heim 1867, svo til 1869, en þá varð Oddný búandi ekkja á Vilborgarstöðum.
Magnús lést 1869.
Hann var í Herfylkingunni.

Kona Magnúsar var Oddný Þórðardóttir húsfreyja, f. 1814, d. 1888 í Vesturheimi.
Börn þeirra hér:
1. Þórður Magnússon, f. um 1841. Hann var með foreldrum sínum 1850.
2. Jóhanna Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1850. Hún fluttist til Vesturheims.
3. Sigurður Magnússon bóndi í Vanangri, f. 22. mars 1851, d. 2. júní 1879.
4. Oddný Magnúsdóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. 1853. Hún fluttist til Vesturheims.
5. Magnús Magnússon, f. 11. janúar 1859, d. 17. janúar 1859 úr ginklofa.
.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.