Sæmundur Sæmundsson (París)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. maí 2014 kl. 22:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. maí 2014 kl. 22:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sæmundur Sæmundsson (París)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sæmundur Sæmundsson tómthúsmaður í París fæddist 25. apríl 1863 í Stakkagerði og lést 12. janúar 1890 Vestanhafs.
Foreldrar hans voru Sæmundur Ólafsson frá Steinmóðarbæ u. Eyjafjöllum, f. 24. desember 1831, d. 20. mars 1863, og barnsmóðir hans Jóhanna Guðmundsdóttir, síðar húsfreyja í París, f. 1. október 1841, d. Vestanhafs 22. apríl 1935.

Sæmundur var með móður sinni og Guðmundi Guðmundssyni æskuár sín.

Kona hans var Pálína Jónsdóttir frá Túni, f. 23. mars 1860, d. 16. júlí 1882 úr mislingum. Hún var dóttir Jóns Vigfússonar og fyrri konu hans Ingibjargar Samúelsdóttur húsfreyju í Krókatúni u. Eyjafjöllum.
Sæmundur fór til Vesturheims 1886 frá París og lést 12. janúar 1890.


Heimildir