Guðrún Erlendsdóttir (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. apríl 2014 kl. 12:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. apríl 2014 kl. 12:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðrún Erlendsdóttir (Ólafshúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Erlendsdóttir.

Guðrún Erlendsdóttir í Ólafshúsum fæddist á Skíðabakka í A-Landeyjum 19. apríl 1879 og lést 12. júní 1965, dvaldi síðast á Elliheimilinu Grund.
For.: Erlendur Erlendsson bóndi á Skíðabakka (Austurbænum), A-Landeyjum, f. 7. september 1833, d. 19. nóvember 1904, og k.h. Oddný Árnadóttir húsfreyja, f. 10. október 1839, d. 31. mars 1905.
Guðrún var systir Jórunnar í Ólafshúsum og Oddnýjar í Dvergasteini.
Hún var um skeið vinnukona í Ólafshúsum, fluttist suður með sjó og bjó þar lengst af.
Að síðustu dvaldi hún á Elliheimilinu Grund í Reykjavík.
Hún giftist ekki og átti ekki börn.