Una Grímsdóttir (Kornhól)
Una Grímsdóttir frá Búðarhóli í A-Landeyjum, húsfreyja í tómthúsi á Kornhól, fæddist 17. apríl 1792 og lést 13. september 1824.
Foreldrar hennar voru Grímur Jónsson bóndi í Miðey í A-Landeyjum, f. 1760 í Oddakoti þar, d. 15. janúar 1855 í Miðey, og kona hans Jódís Þórðardóttir húsfreyja, f. 1759, d. 4. janúar 1834 í Miðey.
Una var systir Gróu Grímsdóttur húsfreyju á Búastöðum, f. 17. júlí 1797, d. 18. júlí 1869. Hún var kona Páls Jenssonar bónda þar.
Þau Oddur giftust 1823. Þau voru húsfólk í Gerði 1823 og í Kornhól 1824. Una lést á því ári „af kæfandi sótt“.
I. Maður Unu, (13. júlí 1823), var Oddur Jónsson, síðar bóndi í Dölum, f. í ágúst 1791, d. 10. október 1836.
Þau Oddur eignuðust ekki börn.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Prestþjónustubækur.