Elín Einarsdóttir (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. mars 2014 kl. 21:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. mars 2014 kl. 21:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Elín Einarsdóttir''' húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 30. júlí 1797 á Gjábakka og lést 6. júní 1854. <br> Foreldrar hennar voru [[Einar J...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Elín Einarsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 30. júlí 1797 á Gjábakka og lést 6. júní 1854.
Foreldrar hennar voru Einar Jónsson tómthúsmaður og sjómaður á Gjábakka, f. 1724, d. 1805, og bústýra hans Margrét Eiríksdóttir, f. 1752, líklega d. fyrir 1816.

Elín var með foreldrum sínum á Gjábakka 1801, var „sveitarbarn“ á 2. býli á Ofanleiti 1812, 19 ára „uppalningur“ þar 1816, vinnukona í Svaðkoti 1821, vinnukona á Ofanleiti 1822-1825.
Þau Jón giftust 1828 og hún var húsfreyja í Kastala 1829 og 1836. Þar var Ástríður móðir Jóns hjá þeim 1836. Þau höfðu eignast og misst Berg Jónsson 1834.
Elín var húsfreyja á Oddsstöðum 1840. Þar voru með þeim Jóni, Ástríður dóttir hans 15 ára og Kristín Jónsdóttir vinnukona 24 ára.
Jón bóndi eignaðist barn með Kristínu vinnukonu 1843.
1845 voru þau á Oddsstöðum og Ástríður Einarsdóttir móðir Jóns var hjá þeim 63 ára.
1850 voru þau enn á Oddsstöðum.
Elín lést 1854.

Maður Elínar (29. júní 1828), var Jón Þorgeirsson bóndi, f. 1808 á Rauðhálsi í Mýrdal, d. 6. júní 1866.
Barn þeirra hér
1. Bergur Jónsson, f. 5. janúar 1834, d. 19. júní 1834 úr ginklofa.


Heimildir