Jón Ögmundsson (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 18:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 18:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jón Ögmundsson (Kirkjubæ)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Jón Ögmundsson eldri bóndi á Kirkjubæ fæddist 1806 á Ytri-Hól í V-Landeyjum og lést 6. maí 1840.
Foreldrar hans voru Ögmundur Jónsson bóndi víða í Landeyjum, en síðast á Skækli (nú Guðnabakki) í A-Landeyjum, f. 1776 á Lágafelli, d. 24. mars 1844 á Skækli, og fyrsta kona Ögmundar, Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 1775 Hallgeirsey í A-Landeyjum, d. 17. desember 1819.
Jón var með foreldrum sínum á Skíðbakkahjáleigu 1816.
Hann fluttist til Eyja 1831 „til að giftast“ og á því ári giftust þau Helga.
Þau voru búandi á Kirkjubæ 1835.
Hann var ekkill við andlát 1840.

Kona Jóns, (1831), var Helga Jónsdóttir húsfreyja, f. 25. febrúar 1803, d. 6. apríl 1839 „ af kæfi....krampa“. Þau eignuðust 4 börn, sem dóu úr ginklofa innan viku frá fæðingu.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Jónsson, f. 13 . júní 1832, d. 19. júní 1832 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
2. Sigríður Jónsdóttir, f. 27. október 1833, d. 2. nóvember 1833 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
3. Jón Jónsson, f. 28. desember 1834, d. 3. janúar 1835 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
4. Jónas Jónsson, f. 27. nóvember 1835, d. 2. desember 1835 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.