Sigurður Sigurðsson yngri (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 17:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 17:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigurður Sigurðsson''' yngri, bóndi í Þorlaugargerði, fæddist 17. maí 1813, hrapaði til bana úr Stórhöfða 9. september 1844.<br> Foreldrar hans voru ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Sigurðsson yngri, bóndi í Þorlaugargerði, fæddist 17. maí 1813, hrapaði til bana úr Stórhöfða 9. september 1844.
Foreldrar hans voru Sigurður Magnússon frá Hallgeirsey í A-Landeyjum, bóndi á Skíðbakka þar, f. 1759, d. 8. febrúar 1846, og síðari kona hans Þorbjörg Árnadóttir húsfreyja frá Skammadal í Mýrdal, f. 1772, d. 31. október 1852.

Sigurður var bróðir Magnúsar Sigurðssonar bónda í Háagarði og bróðir Guðmundar Sigurðssonar bóndi á Oddsstöðum.

Sigurður yngri var með foreldrum sínum á Skíðbakka 1816.
Hann var kominn til Eyja 1840.

I. Kona Sigurðar yngri, (20. september 1840), var Sigþrúður Jónsdóttir húsfreyja, f. 1785, d. 8. mars 1860.
Þau voru barnlaus.

II. Barnsmóðir Sigurðar var Kristín Jónsdóttir á Oddsstöðum, síðar húsfreyja á Vesturhúsum.
Barn þeirra var
Auðbjörg Sigurðardóttir, f. 30. maí 1840, d. 5. júní 1840 úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.