Pallakrær

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. desember 2005 kl. 13:33 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. desember 2005 kl. 13:33 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Pallakrærnar voru sérstakur hluti af atvinnusögu Vestmannaeyja. Þær eru nú horfnar á braut en settu mikinn svip á svæðið við höfnina áður fyrr.

Eftir að fiskveiðar jukust hér upp úr aldamótunum 1900 með vélvæðingu bátaflotans og með tilkomu öflugri veiðarfæra, voru byggð mörg fiskhús á steinstöplum er gerðir voru í sjónum fram af Strandvegi því að allir vildu vera með fiskikrær sínar sem næst sjónum.

Þessar fiskikrær, Pallakrærnar eða Pallarnir eins og byggingarnar voru oftast nefndar, enda voru þetta byggingar á pöllum, náðu austan frá Bæjarbryggju og vestur með StrandvegiDrífandahúsinu þar sem síðar reis húsið Gefjun og nú stendur hús Miðstöðvarinnar. Aðalathafnasvæðið var þar sem frystihús Fiskiðjunnar og Ísfélagsins risu síðar. Annesarvik var nær beint norðan við hús Miðstöðvarinnar og fékk nafn sitt af því að maður að nafni Anders Asmundsen bjargaði þar barni frá drukknun.

Þessar fiskikrær, sem skiptu tugum, voru byggðar