Sigríður Bjarnadóttir (Kornhól)
Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja í Kornhól fæddist 25. janúar 1814 á Miðhúsum og lést 25. september 1857.
Foreldrar hennar voru Bjarni Björnsson bóndi á Miðhúsum, f. 1752, d. 23. nóvember 1827 og kona hans Halldóra Pétursdóttir húsfreyja, f. 1774, d. 1. maí 1822.
Sigríður var með foreldrum sínum á Miðhúsum 1816, vinnukona á Oddsstöðum 1835, húsfreyja í Kornhól 1845 og 1850 og 1855, d. fyrir manntal 1860.
Maður Sigríðar, (19. október 1838), var Helgi Jónsson bóndi og formaður í Kornhól, f. 9. júlí 1806 á Eystri-Klasbarði í V-Landeyjum og lést 17. júní 1864, drukknaði.
Börn þeirra Sigríðar:
1. Ingunn Helgadóttir, f. 10. ágúst 1840.
2. Bjarni Helgason, f. 1844. Hann var með foreldrum sínum 1845, 1850 og 1855. Hann er með ekklinum föður sínum 1860, síðar vinnumaður á Ofanleiti, d. 1869. Hann var í drengjaflokki Herfylkingarinnar
3. Árni Helgason, f. 1848. Hann var flokksforingi í Herfylkingunni. Hann var með foreldrum sínum í Kornhól 1850, 1855, með ekklinum föður sínum þar 1860, ókvæntur vinnumaður í Stakkagerði 1870. Árni fór til Vesturheims 1886 frá Norðurgarði.
4. Jónas Helgason, síðar í Nýjabæ f. 26. september 1851, d. 15. apríl 1914.
Barn Helga frá fyrra hjónabandi og stjúpdóttir Sigríðar var
5. Helga Helgadóttir, f. 12. apríl 1836, d. 29. desember 1914.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.