Kristín Jónsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. október 2013 kl. 21:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. október 2013 kl. 21:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Kristín Jónsdóttir''' frá Vilborgarstöðum, húsfreyja í Ystabæli u. Eyjafjöllum, fæddist 20. nóvember 1843 og lést 20. janúar 1895.<br> Foreldrar...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Jónsdóttir frá Vilborgarstöðum, húsfreyja í Ystabæli u. Eyjafjöllum, fæddist 20. nóvember 1843 og lést 20. janúar 1895.
Foreldrar hennar voru Margrét Jónsdóttir, síðar húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 4. júlí 1824, d. 24. mars 1868, og Jón Jónsson sjómaður, síðar sjávarbóndi í Ólafshúsum, f. 19. ágúst 1816, drukknaði 22. september 1865.

Kristín var á Kirkjubæ hjá ömmu sinni og með móður sinni 1845, var 8 ára tökubarn hjá ömmu sinni Ingibjörgu Erasmusdóttur á Kirkjubæ 1850, en þar var móðir hennar Margrét og Pétur Halldórsson var þar fyrirvinna. Þá var hún hjá móður sinni á Vilborgarstöðum 1855, en 18 ára vinnukona í Ömpuhjalli 1860.
Húsfreyja var hún í Ystabæli u. Eyjafjöllum 1870, 1880 og 1890.
Kristín lést 1895.

Maður Kristínar var Guðmundur Guðmundsson bóndi í Ystabæli, f. 19. apríl 1830, d. 23. júlí 1902.
Börn þeirra hér:
Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. um 1862.
Hólmfríður Guðmundsdóttir, f. um 1868.
Ágúst Guðmundsson, f. um 1873.
Ágústa Guðmundsdóttir, f 1885.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Arnes – síðasti útilegumaðurinn. Kristinn Helgason. Fjölvaútgáfa 1997.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.