Hjálmholt
Húsið Hjálmholt stóð við Urðarveg 34. Það var reist af Ingibergi Hannessyni á árunum 1910-12. Ingibergur var ævinlega nefndur Bergur í Hjálmholti og þótti hafa mjög róttækar stjórnmálaskoðanir. Hjálmholt var tvíbýlishús og þegar gaus bjuggu í eystri hlutanum Ólafur, sonur Ingibergs ásamt konu sinni Eyrúnu Huldu Marinósdóttur og syni þeirra. Í vestari hlutanum bjuggu, þegar gaus, Ólöf Sigvaldadóttir og Sigurlaug Þorsteinsdóttir.