Ritverk Árna Árnasonar/Vísnabálkur, afmæli o.fl.
- Úr fórum Árna Árnasonar
- Vísnabálkur, afmælisljóð og fleira
- (Ýmsar tækifærisvísur)
- Vísnabálkur, afmælisljóð og fleira
- Okkar viljum óskum benda
- að sem blóm í grænni hlíð
- lífið það til leiðarenda
- og lánið elti alla tíð.
- Góðar kveðjur gerum senda
- gestunum úr Blönduhlíð.
- ★
- Aldurhniginn örva grér
- ærumaður gáfur ber.
- Ellin verði indæl þér,
- aðstoð sína drottinn lér.
- ★
- Harla lítið heyrist frá
- herrunum í lánasjóði.
- Bið þig vinur um að sjá
- að mér verði svarað góði.
- Enga hefi á því trú,
- eftir fyrri reynslu minni,
- þetta bjargráð bregðist nú,
- ef bætir um með tilsjá þinni.
- ★
- Heill af hjarta, vinur,
- haltu beint á vonarmið.
- Strákar hafa stærsta lukku,
- stattu hvergi við.
- ★
- Allt er nú orðið fimmtugum fært,
- sem fertugum gengur verr.
- Þetta hef ég af lífinu lært,
- svo lyfti ég skál fyrir þér.
- ★
- Allt er enn sem áður fyrr,
- alls ei þekkist grátur.
- Ef við værum enn með þér
- yrði kanske hlátur.
- ★
- Rúms og tíma hverfast hjól
- hratt með föstu taki.
- Yngismanna ævisól
- yljar þér að baki.
- ★
- Örlaganna kiljan köld
- knörrinn lífs ei taki
- hækka segl um heila öld
- hefur því að baki.
- ★
- Margar eru meyjarnar
- mátulega liprar.
- Syrgja allar eyjarnar,
- ef þú lengur piprar.
- ★
- Vinur, ég bind þér úr braglínum vönd
- sem að ber til þín kveðjuna mína.
- Gæfan æ vefji sín geislandi bönd
- yfir gjörvöll þín ævispor, Stína.
- ★
- Leiði þig gæfunnar gullfagra hönd,
- glóbjarta sveiga þér knýti úr rósum.
- Hvar, sem að liggur þín leið yfir lönd,
- þér leiðbeini guð þá með skínandi ljósum.
- ★
- Fáðu gæði farsældar
- frí við mæðu nauða.
- Lifðu í næði lukkunar
- í lífi bæði og dauða.
- ★
- Greru úr garði
- hjá góðu fólki
- strákar tveir stæltir.
- Ég sá í svanna
- sælar tíðir,
- þú hremmdir hvali
- á hveli suður.
- Heill og sæll höldur,
- hamingju vinur.
- Drýgðu enn dáðir
- af drengskap miklum.
- ★
- Þið fáið nú gesti að gleðiborði
- og góðbænir vina í hverju orði.
- En þegar svo klukkan kallar átta
- kallið til bóls og farið að hátta.
- ————
- Ef símafólk brestur dug og dáð
- og djörfung til þess, það áformar.
- Þá býður því enginn betri ráð
- og blessunarríkari´en Þormar.
- Eyjasímans fólk er fátt,
- finnst óvíða betra.
- Það hefir töfl við tímann átt
- og telft í marga vetra.
- Ljúfar dísir lífs og friðar
- leiði þig um gæfuveg.
- Sól er aldrei setzt til viðar
- sinni blíðu vefji þig.
- ★
- Æviþættir
- Unaðsóma,
- angan blóma
- æska og vor í skauti ber.
- Vonir rætast,
- varir mætast
- vina, er ástin flug sitt lér.
- Glóa skálar,
- gleðin bálar,
- glymur dans og hornaspil.
- Þá er kæti
- lífkvik læti,
- ljúf þeim anda, er finnur til.
- Árin líða
- ævitíða
- út í tímans reginhyl.
- Sorgir mæða,
- sárin blæða,
- sést ei tíðum handaskil.
- Fyrr en varir
- flökta á skari
- fjarra daga skærust ljós.
- Straumar brotna,
- stanza, þrotna
- stilltan loks við feigðarós.
Hvað segir þú um þenna bragarhátt? Finnst þér hann ekki láta vel í eyrum?