Ritverk Árna Árnasonar/Hetjur hafsins
- Úr fórum Árna Árnasonar
- Í dag kom hann Ingólfur Arnar
- Í dag kom hann Ingólfur Arnar
- inn og ég er svo kát.
- Ég tigna hvern togara landsins,
- trillu, skip og bát.
- Ég fór um borð til Bjössa,
- hann blístraði hvellt og hló.
- Ó, hve ég fyrirlít alla,
- sem ekki stunda sjó.
- Blóðlausar búðarlokur,
- blankan stúndentaskríl,
- andlausa ístrubelgi
- og aula, sem keyra bíl.
- Fúla ritsjóraræfla
- og róna barinn við,
- bleikar skrifstofublækur
- og buktandi þjónalið.
- En hinir, sem koma af hafi,
- þeir heyra lífinu til,
- með sjávarins seltu í hári
- og sólskin í augnahyl.
- Þeir einir kunna að elska
- og annast hið veika kyn.
- Hve dásamlegt væri að eiga
- sér einn þeirra fyrir vin.