Blátindur (Heimagötu)
Húsið Blátindur stóð við Heimagötu 12b. Húseignin fór undir hraun en hluti er sjáanlegur ferðamönnum og öðrum. Þorsteinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri, reisti húsið og gaf því nafn eftir Blátindi í Dalfjalli.
Eigendur Blátinds byggðu sér nýtt hús eftir gos uppi á Illugagötu 43 og heitir það einnig Blátindur.