Ritverk Árna Árnasonar/Sveinbjörn Hjálmarsson (vélstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2013 kl. 19:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2013 kl. 19:34 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Sveinbjörn Hjálmarsson vélstjóri, gjaldkeri og umboðsmaður fæddist 11. september 1931.
Foreldrar hans voru Hjálmar Jónsson frá Dölum, f. 5. júní 1899 í Bólstað í Mýrdal, d. 25. júlí 1968, og kona hans Guðbjörg Einara Helgadóttir húsfreyja, f. 16. október 1898, d. 23. júní 1958.

Kona Sveinbjörns er Erna Margrét Jóhannesdóttir, f. 2. janúar 1937.
Börn Sveinbjörns og Ernu eru:
1. Guðrún, f. 22. október 1955.
2. Guðbjörg Helga, f. 1. ágúst 1957.
3. Egill, f. 25. júní 1963.
4. Ásdís Ingunn, f. 9. ágúst 1968.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Sveinbjörn er lágur vexti, svarthærður, allþrekinn um herðar og samsvarar sér vel. Hann er léttlyndur og sviphýr, skemmtilegur í viðræðum og góður í félagsskap.
Hann hefir lítið verið við veiðar og sú íþrótt honum því ótöm, þegar þetta er ritað (nóvember 1954). En alla kosti hefir hann til að bera til þess að geta orðið slyngur veiðimaður, léttur og lipur, snar og fylginn sér, þótt ekki sé hann hár í loftinu.
Lífsstarf hans er vélstjórn, bæði á sjó og landi. Harðduglegur sjómaður og vellátinn af félögum sínum þar. Hann var einn af þeim er björguðust af mb. „Guðrúnu“ VE-163, og var honum þakkað að miklu leyti, hve vel tókst björgun þeirra. Hann er nú opinberlega trúlofaður Ernu, dóttur Jóhannesar Gíslasonar frá Eyjarhólum svo að þar tengjast tveir veiðimannaliðir frá Álsey.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir