Guðríður Þorsteinsdóttir (Dölum)
Guðríður Þorsteinsdóttir bústýra í Dölum fæddist 1797.
Faðir hennar var Þorsteinn bóndi á Sperðli í V-Landeyjum 1801, f. 1767, Lafranzson bónda í Kornhúsum í Hvolhreppi, f. 1730, Sigurðssonar.
Móðir Þorsteins á Sperðli og kona Lafranz var Þorbjörg húsfreyja, f. 1729, d. 12. apríl 1803, Jónsdóttir „yngri“ prests, f. 1692, d. í desember 1741, Gissurarsonar, og konu sr. Jóns, Þuríðar húsfreyju, f. 1697, Böðvarsdóttur.
Móðir Guðríðar bústýru og kona Þorsteins Lafranzsonar var Marín (Maren) húsfreyja á Sperðli 1801, f. 1774, d. 6. febrúar 1816, Guðmundsdóttir bónda í Eystri-Tungu, á Ytri-Hól, Sperðli og Þúfu og Skúmsstöðum í Landeyjum og loks í Galtarholti á Rangárvöllum, f. 1750, d. 11. febrúar 1810, Erlendssonar bónda á Sperðli, f. 1708, d. 5. ágúst 1789, Sigurðssonar, og konu Erlendar, Guðrúnar húsfreyju Eyjólfsdóttur.
Móðir Marinar (Marenar) og barnsmóðir Guðmundar var Guðrún, f. 1749, Jónsdóttir bónda í Eystri-Tungu í Landeyjum, f. 1719, Guðmundssonar, og konu Jóns í Eystri-Tungu, Hildar húsfreyju, f. 1720, Einarsdóttur.
Guðríður var í fóstri hjá Einari föðurbróður sínum á Stóra-Moshvoli í Hvolhreppi 1801. Hún var bústýra á Kollabæ í Fljótshlíð 1835 hjá Jóni Símonarsyni bónda og ekkli, bústýra í Dölum í Eyjum 1845 hjá Ólafi Jónssyni sjómanni og ekkli, og þar var Margrét Guðmundsdóttir 13 ára dóttir hennar hjá henni.
Barnsfaðir Guðríðar var Guðmundur Guðmundsson bóndi á Torfastöðum í Fljótshlíð, f. 7. janúar 1801, drukknaði 3. júni 1833.
Barn þeirra var Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja í Dölum, f. 1833.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.