Gunnhildur Oddsdóttir (London)
Gunnhildur Oddsdóttir húsfreyja í London fæddist 9. október 1824, var á lífi 1882.
Faðir Gunnhildar var Oddur bóndi í Vestra-Fróðholti og Fróðholtshól á Rangárvöllum og Álfhólahjáleigu í Sigluvíkursókn, f. 9. apríl 1790 í Eystra-Fróðholti, d. 28. apríl 1876 að Hrauni í Ölfusi, Gunnarsson bónda í Eystra-Fróðholti, f. 1742, d. 6. nóvember 1829, Árnasonar bónda á Háfi í Holtum, f. 1692, Gunnarssonar.
Móðir Odds í Vestra-Fróðholti og fyrri kona Gunnars Árnasonar var Steinvör húsfreyja, f. 1746, d. 4. janúar 1804, Eiríksdóttir.
Móðir Gunnhildar Oddsdóttur í London var Gunnhildur húsfreyja, f. 16. ágúst 1788, d. 1. ágúst 1843, Árnadóttir bónda á Selalæk á Rangárvöllum, f. 1749 á Keldum, d. 3. apríl 1831, Ormssonar prests á Reyðarvatni, f. 1707, d. í mars 1776, Snorrasonar og fyrri konu séra Orms, Guðlaugar húsfreyju, f. 1720, d. 1751, Árnadóttur.
Móðir Gunnhildar Árnadóttur og kona Árna á Selalæk var Þuríður húsfreyja, f. 1749, d. 21. ágúst 1826, Loftsdóttir prests á Krossi í Landeyjum, f. 1703, d. 1752, Rafnkelssonar, og konu sr. Lofts, Guðbjargar húsfreyju, f. 1712, d. í mars 1765, Pálsdóttur.
Gunnhildur var húsfreyja í Larshúsi, Vestmannaeyjum 1855, í London (nýtt nafn á Larshúsi) 1860. Hún var húskona í Stakkagerði 1870, húskona og ekkja í Gvendarhúsi, 1880. Hún fór í elli sinni til Vesturheims.
Maður Gunnhildar var Lars Tranberg tómthúsmaður, formaður og hafnsögumaður, f. um 1805 í Gudhjem á Borgundarhólmi, d. 30. september 1860. Gunnhildur var síðari kona hans.
Börn Gunnhildar og Lars Tranbergs 1860:
1. Alexander Tranberg, f. 10. desember 1850, d. 18. desember1850.
Amalie Eleonora Larsdóttir, f. um 1851. Hún fór utan um tvítugt, giftist í París dönskum söðlasmíðameistara, Emil Hansen. Þau fóru til Chicago.
2. Kristjana Margrét Larsdóttir, f. um 1854.
3. Maria Maren Kristensa Larsdóttir, f. um 1856, d. 1934. Hún var fósturdóttir Jórunnar Jónsdóttur Austmann. Hún fót til Chicago. Maður hennar var Chr. Nielsen.
4. Jakob Sandersen Larsson Tranberg, f. 7. ágúst 1860, d. 21. maí 1945.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.