Hreinn Jónsson (Brandshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. apríl 2013 kl. 13:50 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. apríl 2013 kl. 13:50 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hreinn Jónsson''' tómthúsmaður og sjómaður í Brandshúsi fæddist 28. nóvember 1821 í Kúfhól í A-Landeyjum og drukknaði í mars 1863.<br> Faðir hans var Jón bóndi...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hreinn Jónsson tómthúsmaður og sjómaður í Brandshúsi fæddist 28. nóvember 1821 í Kúfhól í A-Landeyjum og drukknaði í mars 1863.
Faðir hans var Jón bóndi og hreppstjóri á Önundarstöðum í A-Landeyjum, f. 1798 á Kirkjulandi þar, skírður 9. júní það ár, d. 6. október 1861 á Önundarstöðum, Þorsteinsson bónda, hreppstjóra þar og formanns í Eyjum, f. 1771 á Kirkjulandi, d. 4. október 1844, Hreinssonar bónda í Stóru-Hildisey í A-Landeyjum, f. 1733, d. 25. janúar 1787, Guðmundssonar, og konu Hreins í Stóru-Hildisey, Katrínar húsfreyju, f. 1737 í Hólmum þar, d. 29. janúar 1817, Magnúsdóttur.
Móðir Jóns á Önundarstöðum og kona, (1. desember 1792), Þorsteins Hreinssonar var Ingibjörg húsfreyja, f. 1764, d. 30. júní 1837, Jónsdóttir bónda á Kirkjulandi, f. 1726, d. 20. mars 1814, Ólafssonar, og konu Jóns Ólafssonar, Margrétar húsfreyju, f. 1731, d. 30. mars 1787, Ásmundsdóttur.

Móðir Hreins í Brandshúsi og kona Jóns á Önundarstöðum var Guðrún húsfreyja, f. 12. mars 1795 á Efri-Úlfsstöðum í A-Landeyjum, d. 8. júlí 1876 í Rimakoti þar, Jónsdóttir bónda á Ljótarstöðum þar, f. 1766 á Syðri-Úlfsstöðum, d. 2. apríl 1842 á Snotru þar, Þorkelssonar bónda á Syðri-Úlfsstöðum, f. 1729, d. 17. september 1806, Grímssonar, og konu Þorkels Grímssonar, Guðrúnar húsfreyju, f. 1733, á lífi 1801, Jónsdóttur.
Móðir Guðrúnar og kona Jóns á Ljótarstöðum, (28. október 1790), var Margrét húsfreyja, f. 1765, d. 18. júlí 1834, Hreinsdóttir bónda í Stóru-Hildisey, f. 1733, d. 25. janúar 1787 þar, Guðmundssonar, og konu Hreins Guðmundssonar, Katrínar húsfreyju, f. 1737 í Hólmum, d. 29. janúar 1817, Magnúsdóttur.

I. Kona Hreins Jónssonar í Brandshúsi, (23. september 1853), var Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja í Brandshúsi, f. 17. ágúst 1830, d. 1. júlí 1886, síðar fyrri kona Guðmundar Ögmundssonar, síðar vitavarðar í Batavíu.
Foreldrar Sigríðar Ólafsdóttur voru Ólafur bóndi í Mýrarholti á Kjalarnesi, f. 3. nóvember 1789, d. 2. febrúar 1843, Ingimundarson og kona hans Ragnheiður húsfreyja, f. 1789, d. 25. desember 1859, Sturlaugsdóttir.

Börn Hreins og Sigríðar voru:
1. Ingibjörg Hreinsdóttir húsfreyja á Garðsstöðum og Löndum, f. 13. janúar 1854, d. 18. nóvember 1922, gift Jóni Einarssyni á Garðsstöðum. Þau voru m.a. foreldrar Jónínu Jónsdóttur húsfreyju í Steinholti, konu Kristmanns Þorkelssonar, - foreldrar Karls Kristmanns, Inga Kristmanns og Júlíönu konu Kristjáns Magnússonar frá Dal.
2. Jón Hreinsson í Batavíu, formaður á Blíðu um skeið. Hann fór til Vesturheims með fjölskyldu 1892, kaupmaður í Spanish Fork í Utah.
3. Ólafur Guðjón Hreinsson í París, f. 7. október 1862, d. 28. maí 1890, bjó með Hildi Eyjólfsdóttur.
4. Andvana sonur.

Barnsmóðir Hreins var:
II. Margrét Guðmundsdóttir, síðar húsfreyja á Skíðbakka í A-Landeyjum.
5. Barn: Kristín Hreinsdóttir húsfreyja í Efri-Kvíhólma undir Eyjafjöllum, f. 7. febrúar 1843, d. 19. desember 1934, gift Ingimundi Jónssyni.

Barnsmóðir Hreins að tveim börnum var:
III. Kristín Þorleifsdóttir vinnukona í Miðey í A-Landeyjum.
6. Barn: Guðrún Hreinsdóttir, f. 6. febrúar 1850, d. 30. júlí 1855.
7. Barn: Katrín Hreinsdóttir vinnukona, f. 29. maí 1852, d. 15. ágúst 1898, ógift.

Hreinn bjó á Búðarhóli í A-Landeyjum 1851-1853. Þá fluttist hann til Eyja. Þar voru þau Sigríður tómthúsfólk í Brandshúsi til æviloka hans. Hann var hermaður í Herfylkingunni.
Hreinn var skipverji á þilskipinu Hansínu, sem fórst í mars 1863.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.