Helga Helgadóttir (Steinmóðshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. apríl 2013 kl. 21:04 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. apríl 2013 kl. 21:04 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Helga Helgadóttir''' húsfreyja í Steinmóðshúsi fæddist 12. apríl 1836 og lést 29. desember 1914.<br> Faðir hennar var [[Helgi Jónsson (Kornhól)|Helgi J...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helga Helgadóttir húsfreyja í Steinmóðshúsi fæddist 12. apríl 1836 og lést 29. desember 1914.
Faðir hennar var Helgi Jónsson bóndi og formaður í Kornhól, f. 9. júlí 1806, d. 17. júní 1864.
Hún er skráð dóttir hjónanna í Kornhól 1845, en dóttir hans (Helga) 1850 og 1855.
Húsfreyjan í Kornhól og þá móðir eða stjúpmóðir Helgu var Sigríður Bjarnadóttir, f. 25. júní 1814 í Eyjum, d. fyrir manntal 1860.

Maður Helgu (1855) var Jón Steinmóðsson, f. 1834, d. 28. október 1896.

Helga var húsfreyja í Steinmóðshúsi 1860 og 1870, í Nýborg Nr.2 1890, vinnukona í Nýjabæ 1901 og er þar 1910, systir húsbóndans Jónasar Helgasonar.
Hún ól sjö börn, en tvö eru lifandi 1910.
1. Kristín Jónsdóttir, f. 25. febrúar 1873, d. 16. júlí 1942, gift Vigfúsi Ólafssyni á Seyðisfirði.
2. Friðrik Jónsson, f. 15. febrúar 1880, d. 18. nóvember 1958. Vinnumaður í Frydendal 1910, vinnumaður á Strandvegi 43 A 1930, síðast á Elliheimilinu.


Heimildir