Mynd:Blik 1967 19.jpg
Upphafleg skrá (1.312 × 1.012 mynddílar, skráarstærð: 186 KB, MIME-gerð: image/jpeg)
Tómthúsið Vestri-Lönd. Íbúðarhús hjónanna Sigfúsar Árnasonar, organista, og frú Jónínu K. N. Brynjólfsdóttur. Myndin er tekin af málverki, sem sýnir suðurhlið hússins. Í vesturenda hússins hafði Sigfús póstafgreiðsluna (1896-1904). Gengið var þar inn um dyr á skúrnum til vinstri. - Brynjólfur Sigfússon seldi Vestri-Lönd 1908 hjónunum Friðriki Svipmundssyni og Elínu Þorsteinsdóttur. Söluverðið var kr. 2.120.00. Við undirskrift kaupsamnings greiddu hjónin kr. 1.120,00 og kr. 1.000,00 nokkrum mánuðum síðar. Húsið var brunatryggt í Nye dansk Forsikringsselskab í Kaupmannahöfn fyrir kr. 2.000,00. Árlegt iðgjald kr. 21,00 - Íbúðarhús þetta reif Friðrik Svipmundsson 1909, er hann hóf að byggja íbúðarhús sitt Stóru-Lönd, sem enn stendur þar.
Myndin Kemur fram í Blik 1967 á blaðsíðu 19 í greininni: III. Sigfús Árnason, organisti
Breytingaskrá skjals
Smelltu á dagsetningu eða tímasetningu til að sjá hvernig hún leit þá út.
Dagsetning/Tími | Smámynd | Víddir | Notandi | Athugasemd | |
---|---|---|---|---|---|
núverandi | 12. júlí 2007 kl. 09:21 | 1.312 × 1.012 (186 KB) | Dadi (spjall | framlög) | Tómthúsið Vestri-Lönd. Íbúðarhús hjónanna Sigfúsar Árnasonar, organista, og frú Jónínu K. N. Brynjólfsdóttur. Myndin er tekin af málverki, sem sýnir suðurhlið hússins. Í vesturenda hússins hafði Sigfús póstafgreiðsluna (1896-190 |
Þú getur ekki yfirskrifað þessa skrá.
Skráartenglar
Eftirfarandi 2 síður nota þessa skrá: