Jóhann Gunnar Ólafsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2005 kl. 16:26 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2005 kl. 16:26 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Gunnar Ólafsson fæddist 19. nóvember 1902 í Vík í Mýrdal. Foreldrar hans voru Ólafur Arinbjarnarson verslunarstjóri og Sigríður Eyþórsdóttir. Hann varð cand. juris frá Háskóla Íslands 1927. Jóhann var kosinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í desember 1928 og gegndi því embætti til 1938. Eftir tveggja ára starf við Útvegsbankann í Vestmannaeyjum fluttist hann á Ísafjörð þar sem hann gegndi embætti sýslumanns í 25 ár.

Jóhann gaf út fjölda bóka og rita, frumsamdra, þýddra og eftir aðra.

Kona Jóhanns hét Ragna Haraldsdóttir og giftust þau í Vestmannaeyjum sama ár og Jóhann tekur við embætti bæjarstjóra hér.



Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.