Ólafur Jónsson (Garðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. júlí 2012 kl. 16:14 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. júlí 2012 kl. 16:14 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Ólafur Jónsson


Ólafur og Anna.

Ólafur Jónsson, Garðhúsum, fæddist 23. desember 1872 í Akurey í Landeyjum og lést 11. júní 1967, 94 ára gamall.

Ólafur fór til Vestmannaeyja fyrir aldamótin 1900. Áður en mótorbátarnir komu var Ólafur á opnu skipi með Magnúsi Þórðarsyni í Sjólyst. Árið 1908 byrjar Ólafur formennsku á Val. Árið 1910 hætti hann hins vegar formennsku og gerðist verkstjóri hjá Gísla J. Johnsen og svo síðar hjá Shell.

Eiginkona hans hét Anna Vigfúsdóttir. Á meðal barna þeirra var Tryggvi Ólafsson málari.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.